Forsíða
Myndir
E-mail
 




Blandaðu saman ósnortinni náttúru, hreinu hafsvæði og fjölbreyttu dýralífi og þá er komin uppskriftin af paradís náttúruunnandans.

Það er sjálfsagt ekki hægt að ímynda sér betri og auðveldari ferðamáta en sjókajakinn. Róa meðfram fallegri fjöru þar sem mætast tveir heimar; landið og hafið. Nálægðin er mikil og fuglinn og selurinn kippa sér ekki upp við báta sem róa nánast hljóðlaust ótrúlega nálægt. Vestfirskar ævintýraferðir bjóða upp á ferðir víða um Vestfirði en hafa sérhæft sig í kajakferðum um Jökulfirði og Ísafjarðardjúp. Einnig er boðið upp á að tvinna saman jeppa- og kajakferð þar sem bæði er farið á fáfarnar fjallaslóðir og kajaknum dýft niður í næsta fjörð og róið. Allar ferðir eru sérsniðnar að þörfum ferðamannsins og er nánast ekkert útilokað hvort sem er sumar eða vetur. Vestfirskar ævintýaferðir útvega allan búnað s.s. tjöld, báta og mat. Mikil áhersla er lögð á öryggi farþega og fá allir þurrgalla og kennslu í meðferð kajaka í upphafi ferðar. Allir leiðsögumenn eru þaulvanir ræðarar og þekkja náttúru svæðisins vel, enda eru þeir á heimaslóðum. Jökulfirðir og Djúp eru mjög örugg svæði til sjókajakróðurs, jafnvel fyrir byrjendur. Firðirnir eru skjólgóðir og straumar mjög veikir og því nánast alltaf hægt að róa og halda áætlun.

Njóttu Vestfjarða á kajak eða í fjallajeppa

 

Hugmynd að ferð um Jökulfirði

Siglt er frá Ísafirði til Hesteyrar seinnipart dags með hraðbáti. Um kvöldið er tekin stuttur róður, leitað að sel eða Hvalveiðistöðin á Stekkseyri skoðuð. Að morgni næsta dags, er róið í rólegheitunum inn í Veiðileysufjörð og gist í botni hans. Úr Veiðileysufirði er róið yfir í Lónafjörð. Á leiðinni er fjaran skoðuð, steinmyndanir, fuglar og selir. Einnig er ekki óalgengt að sjá hvali á þessum slóðum. Lónafjörður er oft nefndur fallegasti fjörður landsins. Þar fer saman fegurð, einangrun og ósnortin náttúra sem á fáa sína líka. Úr botni Lónafjarðar er róið áfram að morgni næsta dags og tekið land á Flæðareyri þar sem hópurinn er sóttur. Einnig er hægt að láta ná í hópinn í botni Lónafjarðar. Auðvelt er að bæta við tveimur dögum og enda í Grunnavík.