Jón Jónsson | þriðjudagurinn 21. maí 2013

Vel heppnað listamannaþing á Patreksfirði

1 af 3

Þann 11. maí síðastliðinn stóð Félag vestfirskra listamanna fyrir Listamannaþingi á Patreksfirði í samvinnu við Menningarráð Vestfjarða og með stuðningi Sjóræningjahússins og Odda. Þar var haldinn aðalfundur félagsins, en auk þess voru framsögur og umræður um menningarmál á Vestfjörðum og hlutverk og verkefni félagsins. Aðalræðumaður dagsins var Karl Ágúst Úlfsson.

...
1 af 3

Þriðjudaginn 21. maí frá 12:30-16:30 verður haldinn annar fundur Markaðsstofu Vestfjarða, Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands undir heitinu Vestfirðir og ferðamenn framtíðarinnar. Þessi fundur verður í Sjóræningahúsinu á Patreksfirði og verður þema fundarins Umhverfisvottun, þjóðgarðar og friðlýst svæði sem aðdráttarafl.

...

Stjórn BsVest hefur samþykkt að ráða Sif Huld Albertsdóttur í starf verkefnastjóra. Sif er 27 ára og er þroskaþjálfi að mennt auk iðnmenntunar. Hún hefur veitt forstöðu Hæfingarstöðinni Hvestu hjá Ísafjarðarbæ í fæðingarorlofi forstöðumanns, auk þess að hafa starfað innan félagsþjónustu Ísafjarðarbæjar með námi.

...
Fyrri síða
1
234567333435Næsta síða
Síða 1 af 35