Verkefni Fjórðungssambands Vestfirðinga

Fjórðungssamband Vestfirðinga fæst við margvísleg verkefni. Sérstakar vefsíður má finna um eftirtalin verkefni:

 

  • Sóknaráætlun landshluta
  • Umhverfisvottun Vestfjarða
  •  

    Fjórðungssamband Vestfirðinga hefur unnið ötult starf í meira en hálfa öld. Hins vegar má segja, að þetta starf hafi að miklu leyti verið unnið á bak við tjöldin. Sú vinna hefur að verulegu leyti snúið að ríkisvaldinu og stofnunum þess og allur almenningur hefur lítið orðið hennar var, fyrr en árangurinn hefur séð dagsins ljós. Og jafnvel þá hafa oft mjög fáir gert sér grein fyrir þætti sambandsins í þeim árangri, jafnvel þótt hann hafi ráðið úrslitum.

    Hlutur Fjórðungssambandsins í framgangi hagsmunamála vestfirskra byggða hefur jafnan lítið verið auglýstur, ef til vill of lítið. Hér er ekki rúm til að telja upp einstök mál og skal því eitt látið nægja: Fjórðungssamband Vestfirðinga og þáverandi framkvæmdastjóri þess, Jóhann T. Bjarnason, áttu meiri þátt í því en nokkur annar að jarðgöngin undir Breiðadalsheiði og Botnsheiði urðu að veruleika.

    Málaflokkar þeir sem Fjórðungssamband Vestfirðinga hefur látið til sín taka yrðu löng upptalning. Hér skal aðeins minnt á

    • samgöngur
    • orkumál
    • atvinnulíf
    • skólamál
    • ferðamál
    • rannsóknir á auðlindum
    • símamál
    • skógrækt
    • heilbrigðisþjónustu
    • hafnamál

    svo að fátt eitt sé nefnt af handahófi.