Um Vestfjarðavefinn
Vestfjarðavefurinn er í eigu Sögusmiðjunnar, fyrirtækis á Ströndum sem einbeitir sér að miðlun sögu og þjóðfræða, og er unninn af starfsmönnum fyrirtækisins. Upphaflega var vefurinn gerður árið 2000 í samvinnu við Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða og gegndi þá um leið hlutverki ferðaþjónustuvefjar fyrir Vestfirði. Hugmyndin og frumkvæðið að þessum ofvaxna ferðaþjónustu- og upplýsingavef fyrir Vestfirði var komin frá framkvæmdastjóra og eiganda Sögusmiðjunnar, Jóni Jónssyni þjóðfræðingi.
Önnur útgáfa vefjarins með nýju útliti og verulegum viðbótum, m.a. gagnagrunni um öll ferðaþjónustufyrirtæki og enskri og þýskri útgáfu, var opnuð 2004. Árið 2007 leysti síðan nýr vefur á vegum Markaðsstofu Vestfjarða Vestfjarðavefinn af hólmi sem ferðaþjónustuvefur, en jafnframt var tekin sú ákvörðun að breyta honum í myndskreytt alfræðirit um Vestfirði á vefnum og fékkst til þess styrkur árið 2007 og 2008 frá Pokasjóði.
Árið 2007 var áhersla lögð á að uppfæra og setja inn nýjar myndir og texta í Strandasýslu og Barðastrandarsýslu, en árið 2008 er áhersla lögð á Ísafjarðarsýslu, auk þess sem bætt verður við efni um náttúru og gönguleiðir. Langtímaáætlun gerir ráð fyrir að vefurinn verði "tilbúinn" og gengið hafi verið frá honum öllum með viðunandi hætti í maí 2010, þegar hann verður 10 ára.
Jón Jónsson þjóðfræðingur á Kirkjubóli á Ströndum er ritstjóri Vestfjarðavefjarins og þar með ábyrgur fyrir öllum villum sem á honum kunna að leynast. Jón tekur með jafnaðargeði við athugasemdum, ábendingum, aðfinnslum og skömmum í tölvupósti í netfanginu sogusmidjan@strandir.is.
Hönnun vefjarins og höfundar texta:
-
Jón Jónsson þjóðfræðingur - ritstjórn, hugmyndavinna, textagerð, uppsetning vefjarins. Aðalhöfundur texta.
-
Áki Guðni Karlsson bókmenntafræðingur - hugmyndavinna, útlitshönnun vefjarins, táknmynda og korta á honum.
-
Sigurður Atlason þúsundþjalasmiður - hugmyndavinna, textagerð, myndvinnsla, uppsetning vefsins, við 1. útgáfu árið 2000. Höfundur hluta af textum á Hornströndum.
-
Hulda Rós Guðnadóttir mannfræðingur - hugmyndavinna, aðalhöfundur texta í Barðastrandarsýslu, einnig hluta Ísafjarðarsýslu og Hornstranda, við 1. útgáfu árið 2000.
-
Rakel Pálsdóttir þjóðfræðingur - ritstjórn, hugmyndavinna og textagerð við 1. útgáfu árið 2000.
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir þjóðfræðinemi - textagerð um þéttbýlisstaði, Hornstrandir og fleira við 1. útgáfu árið 2000.
-
Björk Bjarnadóttir þjóðfræðingur - textagerð við 2. útgáfu árið 2004.
-
Arnar Birgir Ólafsson þjóðfræðinemi - textagerð, einkum þjóðsagnaefni, við 1. útgáfu árið 2000.
Ljósmyndir á vefnum:
Myndirnar á vefnum eru fengnar víða að. Sumar þeirra eru teknar á vegum Sögusmiðjunnar og aðrar eru fengnar að láni hjá góðu fólki til að birta þær á vefnum. Þar eru yfirleitt á ferðinni áhugaljósmyndarar sem hafa haft myndavélina með í för á ferðalagi um fjórðunginn eða fólk sem hefur tekið myndir í sinni heimabyggð.
Við bendum á að þeir sem myndirnar tóku eiga höfundarrétt á þeim. Eftirtaldir eiga myndir á vefnum:
-
Arnar S. Jónsson, frá Steinadal á Ströndum
-
Árdís Björk Jónsdóttir, frá Steinadal á Ströndum
-
Ásdís Jónsdóttir, á Hólmavík
-
Dorothee Lubecki, fyrrverandi ferðamálafulltrúi Vestfjarða
-
Harpa Hlín Haraldsdóttir, frá Hólmavík
-
Hrafnhildur Gróa Atladóttir, í Keflavík
-
Jón Jónsson, þjóðfræðingur á Ströndum
-
Sigurður Atlason, framkvæmdastjóri Hólmavík
-
Steinunn Hjaltadóttir, USA, frá Árneshreppi á Ströndum
-
Auður H. Jónatansdóttir, Keflavík
-
Eggert Marinósson, Reykjavík
-
Ester Sigfúsdóttir, Kirkjubóli á Ströndum
-
Helgi Jónsson, frá Reykjanesi á Ströndum
-
Jenný Jensdóttir, Drangsnesi
-
Valgeir Benediktsson, Árnesi í Trékyllisvík
Helstu heimildir
Eins og sjá má er fróðleikurinn á vefnum fenginn víða - úr bókum, greinum og ritgerðum, vettvangsferðum og viðtölum. Helstu bækur sem nýttar voru við gerð vefjarins eru nefndar hér á eftir. Þær eru jafnframt margar hverjar ótæmandi fróðleiksnámur um vestfirska sögu, mannlíf og menningu. Einnig hafa fengist fjölmargar gagnlegar ábendingar frá þeim sem vafrað hafa um vefinn.
Almennt um Vestfirði
- Eyjólfur Jónsson: Vestfirskir slysadagar 1880-1940. Ísafirði 1996.
- Hans Kuhn: „Vestfirsk örnefni.“ Árbók hins íslenska fornleifafélags 1949-1950.
- Hjálmar R. Bárðarson: Vestfirðir í máli og myndum. Reykjavík 1993.
- Íslenskar þjóðsögur og ævintýri I-VI. Jón Árnason safnaði. Reykjavík 1954-61.
- Sóknalýsingar Vestfjarða. Ólafur Lárusson bjó til prentunar. Reykjavík 1952.
- Vestfirzkar sagnir I-III. Helgi Guðmundsson og Arngrímur Fr. Bjarnason söfnuðu. Reykjavík 1933-49.
- Vestfirzkar þjóðsögur. Safnað hefur Arngrímur Fr. Bjarnason. Reykjavík 1909-59.
Hornstrandir
- Guðrún Ása Grímsdóttir: Grunnvíkingabók 1-2. 2. útg. Reykjavík 1992.
- Guðrún Ása Grímsdóttir: Ystu Strandir norðan Djúps. Árbók Ferðafélagsins. Reykjavík 1994.
- Haukur Jóhannesson, Eyþór Einarsson og Kristinn Haukur Skarphéðinsson: Hornvík. Leiðalýsing og náttúrufar. Reykjavík 1985.
- Leifur A. Símonarson: Jarðfræði Hornstranda og Jökulfjarða. Ágrip. Reykjavík 1979.
- Páll Ásgeir Ásgeisson: Hornstrandir. Gönguleiðir. Reykjavík 1999.
- Snorri Grímsson: Gönguleiðir á Hornströndum og Jökulfjörðum. Reykjavík 1984.
- Þórleifur Bjarnason: Hornstrendingabók 1-3. 2. útg. aukin. Reykjavík 1976.
Strandir
- Haukur Jóhannesson: Stundir á Ströndum frá Kolbeinsvík norður á Geirhólm. Reykjavík 2001.
- Jóhann Hjaltason: Frá Djúpi og Ströndum. Reykjavík 1963.
- Jóhann Hjaltason: Strandasýsla. Árbók Ferðafélags Íslands 1952. Reykjavík 1952.
- Magnús Rafnsson: Ægishjálmur. Þjóðsögur af Ströndum. Strandasýsla 1996.
- Óli E. Björnsson: Hólmavíkurbók. Hólmavík 1990.
- Pétur Jónsson frá Stökkum: Strandamannabók. Reykjavík 1947.
- Strandapósturinn 1.-34. árg. Fjölmargar greinar.
- Strandir 1 - jarðalýsingar og ábúendatöl. Ritstj. Jón Jónsson - óprentað handrit.
- Þorsteinn Matthíasson: Hrundar borgir. Djúpavík, Ingólfsfjörður og Gjögur. Reykjavík 1973.
Ísafjarðarsýslur
- Böðvar Bjarnason: Hrafnseyri. Fæðingarstaður Jóns Sigurðssonar forseta. Reykjavík 1961.
- Einar Þ. Guðjohnsen: Gönguleiðir á Íslandi. Vestfirðir. Frá Rauðasandi til Ísafjarðardjúps. Reykjavík 1996.
- Einar Laxness: Safn Jóns Sigurðssonar forseta, Hrafnseyri. Hrafnseyri 1980.
- Firðir og fólk 2. Vestur Ísafjarðarsýsla 1900-1999. Reykjavík 1999.
- Hallgrímur Sveinsson: Frá Bjargtöngum að Djúpi. Mannlíf og saga fyrir vestan 1-3. Hrafnseyri 1998-2000.
- Kjartan Ólafsson: Firðir og fólk 1. Vestur Ísafjarðarsýsla 900-1900. Reykjavík 1999.
- Jóhann Hjaltason: Frá Djúpi og Ströndum. Reykjavík 1963.
- Jóhann Hjaltason: Norður-Ísafjarðarsýsla. Árbók Ferðafélagsins. Reykjavík 1949.
- Kristján G. Þorvaldsson: Vestur-Ísafjarðarsýsla. Árbók Ferðafélagsins. Reykjavík
Barðastrandarsýsla
- Árbók Barðastrandarsýslu 1-12. árg. 1948-1979.
- Barðstrendingabók. Kristján Jónsson frá Garðsstöðum bjó til prentunar. Reykjavík 1942.
- Bergsveinn Skúlason: Áratog. Þættir úr atvinnusögu Breiðfirðinga. Reykjavík 1970.
- Bergsveinn Skúlason: Bréf og bögglar. Reykjavík 1977.
- Bergsveinn Skúlason: Útskæfur. Þættir úr Breiðafirði. Reykjavík 1974.
- Björn Hróarson: Dalir og Barðastrandarsýslur. Reykjavík 1995.
- Einar Þ. Guðjohnsen: Gönguleiðir á Íslandi. Vestfirðir. Frá Rauðasandi til Ísafjarðardjúps. Reykjavík 1996.
- Hallgrímur Sveinsson: Frá Bjargtöngum að Djúpi. Mannlíf og saga fyrir vestan 1-3. Hrafnseyri 1998-2000.
- Ásgeir Jakobsson: Bíldudalskóngurinn. Athafasaga Péturs J. Thorsteinssonar. Hafnarfjörður 1990.
- Jóhann Skaptason: Barðastrandarsýsla. Árbók Ferðafélagsins. Reykjavík 1959.
- Jón Kr. Guðmundsson: Skyggir skuld fyrir sjón 1-2. Kópavogur 1990.
- Jón Guðnason: Umbylting við Patreksfjörð 1870-1970. Reykjavík 1993.
- Magnús Gestsson: Látrabjarg. Nytjar, björgun, sögur og sagnir. Hafnarfjörður 1971.
- Magnús Gestsson: Úr vesturbyggðum Barðastrandarsýslu. Hafnarfjörður 1973.
|
| Sólarupprás á Hólmavík - ljósm. Arnar S. Jónsson | |