Strandasýsla
|
| Bergistangi í Norðurfirði - ljósm. Sögusmiðjan |
Strandasýsla heitir eftir strandlengjunni frá Hrútafirði norður að Geirólfsgnúpi. Víða við ströndina liggur rekaviður í hrúgum í fjörunni, en hann berst með hafstraumum frá ströndum Síberíu. Rekaviðurinn hefur ávallt verið ein mestu hlunnindi Strandamanna.
Í hugum margra hafa Strandir á sér dulúðlegan blæ og Strandamenn voru oft taldir búa yfir kunnáttu til að beisla náttúruöflin. Landslagið allt gerir ferðamönnum auðveldara að setja sig inn í heim þjóðsagna og trúa á tilvist álfa, trölla og annarra yfirnáttúrulegra vera.
Á Ströndum er ógrynni fallegra gönguleiða við allra hæfi. Strandamenn standa sig líka vel við að koma á framfæri þjóðsögum héraðsins. Á svokölluðum Sagnarekum sem eru smíðaðir haganlega úr rekaviði má lesa þjóðsögu eða fróðleik - sögur um tröll, drauga og galdramenn.
Á Ströndum er Galdrasýning - www.galdrasyning.is - en fyrsti hluti hennar var opnaður á Hólmavík árið 2000 og árið 2005 var Kotbýli kuklarans á Klúku í Bjarnarfirði.
|
| Á bryggjunni á Gjögri - ljósm. Sögusmiðjan |
Í Strandasýslu eru nú (2007) fjögur sveitarfélög: Bæjarhreppur, Strandabyggð, Kaldrananeshreppur og Árneshreppur. Þrír þéttbýlisstaður er á Ströndum: Hólmavík og Drangsnes við Steingrímsfjörð og Borðeyri við Hrútafjörð.
|