Barðastrandasýslur - Ísafjarðarsýslur - Strandir - Hornstrandir  
 

Ísafjarðarsýslur

Súðavík við Álftafjörð - ljósm. Sögusmiðjan

Ísafjarðarsýslur taka yfir landsvæðið frá Langanesi í Arnarfirði allt norður í Horn og þaðan í Geirólfsgnúp við sunnanverðan Reykjarfjörð, þar sem sýslumörk Ísafjarðar- og Strandasýslu eru. Frá Geirólfsgnúpi ná sýslumörkin upp í Hrollleifsborg á Drangajökli.


Dynjandi - ljósmynd: Helgi Jónsson
Í öllum þéttbýlisstöðum Ísafjarðarsýslna sem eru sex talsins er útgerð og fiskvinnsla aðalatvinnuvegurinn. Þjónusta hefur þó farið verulega vaxandi og búskapur er stundaður í litlum mæli í sveitunum. Undirlendi á Vestfjörðum er ekki mikið, en láglendið er allt vel gróið og kjarrlendi finnst víða.

Aðaleinkenni vestfirska landslagsins eru þröngir og mjóir firðir með háum og bröttum fjöllum sem ganga víða í sjó fram. Hálendi Vestfjarða einkennist hins vegar af því hve flatt það og er engu líkara en almættið hafi skorið ofan af fjöllunum með flugbeittum kuta.


Sögustaðir eru fjölmargir og náttúruperlur eins og t.d. Dynjandi setja svip á héraðið. Eins má nefna fjöllin milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar sem eru ólík flestum öðrum fjöllum á Vestfjörðum. Þau eru stundum kölluð "Vestfirsku alparnir" manna á milli. Af rismiklum fjallatindunum stendur Kaldbakur upp úr, hæsta fjall á Vestfjörðum, en aðeins vantar 2 metra upp á að fjallið sé 1000 metrar.

Bátur í Mjóafirði - ljósm. Sögusmiðjan

Ísafjarðardjúp tilheyrir Súðavíkurhreppi að botni Ísafjarðar innst í Djúpi, en þaðan liggja mörk Barðastrandarsýslu yfir Glámuhálendið að Langanesi í Arnarfirði. Allt þetta svæði tilheyrir nú þremur sveitarfélögum, Bolungarvík, Súðavíkurhreppi og Ísafjarðarbæ sem er sameinað sveitarfélag allra annarra hreppa á norðanverðum Vestfjörðum.

MANNLÍF OG SAGA
Þéttbýli
Markverðir staðir
Þjóðsögur
Kirkjur
Vestfirðingar
Landnám og sögur



EFST Á BAUGI
Náttúra Vestfjarða
Gönguleiðir
Myndasafn
Ferðaverkefni
VEFURINN
Upphafssíða
Um vefinn
Auglýsingar
Innskráning

© 2004 - Sögusmiðjan og höfundar efnisAuglýsingarVeftréUm vefinn