Barðastrandasýslur - Ísafjarðarsýslur - Strandir - Hornstrandir  
 

Hornstrandir og Jökulfirðir

Hornstrandafriðland var stofnað árið 1975 og nær yfir nyrsta hluta Vestfjarðakjálkans. Auk hinna eiginlegu Hornstranda nær friðlandið yfir Aðalvík og nágrenni, norðurhluta Jökulfjarða að botni Hrafnsfjarðar og suður að Skorarheiði og botni Furufjarðar. Náttúruvernd ríkisins og sýslumaðurinn á Ísafirði fara með eftirlit í Hornstrandafriðlandi og hafa sett reglur um umferð á svæðinu, sem sjálfsagt er að kynna sér vel. Undir þessum tengli má finna kort af Hornströndum á vef Óvissuferða sem bjóða upp á gistingu í Hornbjargsvita í Látravík.

Minjar um liðna tíð - ljósm. Steinunn Hjaltadóttir

Fyrrum var einnig venja að telja strandlengjuna að sýslumörkum við Geirólfsgnúp, sunnan við Reykjafjörð og Sigluvík, með Hornströndum og því eru Þaralátursfjörður og Reykjafjörður á Ströndum einnig hafðir með í þessum hluta Vestfjarðarvefjarins. Auk þess er mörk Ísafjarðarsýslu og Strandasýslu við Geirólfsgnúp og þessir firðir þeir einu norðan Drangajökuls sem ekki tilheyra Hornstrandafriðlandinu eða Strandasýslu. Grunnavík og Leirufjörður við sunnanverða Jökulfirði eru nátengd sögu Hornstranda og eru því einnig tekin með í þessum hluta vefsins.

Refurinn á Hornströndum, góðkunningi ljósmyndara - ljósmynd: Dorothee Lubecki

Á Hornströndum er stórbrotin náttúrufegurð. Snarbrött blágrýtisfjöll sem mörg hver ná upp í 500-700 metra hæð einkenna landslagið, skorin í sundur af fjörðum, víkum og dölum. Við ströndina hefur sjórinn séð um að móta landslagið og inn til landsins hafa skriðjöklar skilið eftir sig skörð í hrjóstrugu hálendinu. Fuglar, selir og refir eiga þarna friðland.

Áður fyrr var allnokkur byggð á Hornströndum og víða í fjarðarbotnum og dölum er að finna minjar um atvinnu- og byggðasögu svæðisins.

MANNLÍF OG SAGA
Þéttbýli
Markverðir staðir
Þjóðsögur
Kirkjur
Vestfirðingar
Landnám og sögur



EFST Á BAUGI
Náttúra Vestfjarða
Gönguleiðir
Myndasafn
Ferðaverkefni
VEFURINN
Upphafssíða
Um vefinn
Auglýsingar
Innskráning

© 2004 - Sögusmiðjan og höfundar efnisAuglýsingarVeftréUm vefinn