Furufjörður
|
Furufjörður er stuttur og breiður fjörður sem liggur fyrir opnu hafi á mörkum Hornstranda og Stranda og eru mörk Hornstrandafriðlandsins í botni fjarðarins.
|
Vesturströnd Furufjarðar tilheyrir Hornstrandafriðlandi og heitir fjallið Ernir sem gengur út ströndina að Drangsnesi. Innan við Drangsnes er Bolungavíkurbjarg. Úr bjarginu gengur hár klettastapi niður í fjöru, Bolungavíkurófæra, sem er einungis fær á fjöru. Þaðan er greið leið til Bolungavíkur, en rétt er þó að fara þessa leið í sæmilegu skyggni, því gatan getur verið vandrötuð.
Að austanverðu stendur Furufjarðarnúpur við mynni fjarðarins og handan hans er Þaralátursfjörður. Tveir drangar standa framan við núpinn. Annar gengur í sjó fram og er auðþekkjanlegur af litlu gati sem myndar einskonar hald í klettinn. Líkist hann könnu og dregur nafn sitt af því. Hinn kletturinn heitir Kerling og er hann einmitt tröllkerlingin sem dagaði þarna uppi með könnuna. Fært er fyrir núpinn á fjöru.
Nokkru innar í firðinum gengur Saltvík inn í ströndina en milli hennar og núpsins er Saltvíkururð og Furufjarðarófæra sem er þverhníptur klettaveggur sem gengur í sjó fram. Ekki er fært þar um nema á stórstraumsfjöru í ládeyðu. Innst á austurströndinni er fjallið Dagmálahorn.
Upp úr Furufirði er farið yfir Skorarheiði til Hrafnsfjarðar. Það var fyrrum fjölfarin leið. Önnur fjölfarin leið er yfir Svartaskarð yfir í Þaralátursfjörð og þaðan í Reykjarfjörð og suður Strandir. Undirlendi í firðinum er talsvert, grænar engjar og mýrar og Furufjarðará liðast niður dalinn í ótal bugðum.
Furufjörður var fyrr á öldum einhver mest metna bújörð á Hornströndum. Byggð í Furufirði lagðist af um miðja 20. öld en áður var þríbýli í firðinum. Nokkur hús eru í Furufirði, þar á meðal er gamalt bænhús sem reist var um aldamótin 1900 og neyðarskýli SVFÍ.
Á sjávarbökkunum ekki langt frá bænhúsinu var Árnabær. Þar bjuggu Árni Jónsson og Elín Betanía Jónsdóttir, systir Hjálmars sem var síðasti ábúandi í Smiðjuvík. Eftir andlát Elínar var Salóme dóttir hennar ráðskona hjá Árna þar til hann flutti til Bolungarvíkur við Djúp. Salóme átti Elín með fyrsta eiginmanni sínu Guðmundi Benediktssyni, bónda á Höfða við Leirufjörð í Jökulfjörðum, sem drukknaði árið 1901. Síðustu ábúendur í Árnabæ voru Guðmundur Árnason og Sigríður Jakobsdóttir frá Reykjafirði sem bjuggu þar
1946-50. Dóttir Elínar og Árna, Kristín Valgerður Árnadóttir, bjó ásamt manni sínum Benjamín Eiríkssyni í skúr sem var áfastur Árnabæ á árunum 1938-49.
Í Vagnsbæ skammt frá bjó síðan Vagn Guðmundsson, sonur Elínar og Guðmundar, ásamt konu sinni Hjálmfríði Jónatansdóttur á árunum 1934-50. Flutti fjölskyldan þá til Hnífsdals og Furufjörður fór í eyði. Rústir Árnabæjar blasa við, en Vagnsbær hefur verið gerður upp og er notaður til sumardvalar.
Þriðji bærinn í Furufirði var Bærinn á Bökkunum en þar bjó Ólafur Samúelsson og kona hans Guðmundína Einarsdóttir ásamt vinnufólki og börnum. Þau fluttu burt árið 1944 eftir að hafa búið þar í 17 ár.
Í Naustum niðri við sjóinn liggja fúnar leifar bátsins Hrings, á hvolfi við nausttóftirnar. Báturinn var í eigu Árna Jónssonar. |