Barðastrandarsýsla
|
| Mjóafjarðará í Reykhólahreppi - ljósm. Sögusmiðjan |
Austur og Vestur-Barðastrandarsýslur ná yfir syðsta hluta Vestfjarðakjálkans, frá botni Gilsfjarðar að austanverðu út á Látrabjarg að vestan og norður að Langanesi í Arnarfirði. Fjölmargar af eyjum Breiðafjarðar tilheyra sýslunum. Eyjarnar sem eru flestar komnar í eyði eiga sér magnaða sögu og eru rómaðar fyrir einstaka náttúru, fugla- og dýralíf.
Úr Breiðafirði skerast nokkrir firðir inn í suðurströnd Vestfjarðarkjálkans, flestir stuttir og grunnir, og á milli þeirra ganga fram háir og hrjóstrugir múlar. Landslag á þessum slóðum er þó ekki jafn hrikalegt og á norðanverðum Vestfjörðum og Hornströndum þótt undirlendi sé lítið. Helst er undirlendi í fjarðarbotnum, á Barðaströnd, Rauðasandi, í Geiradal og Reykhólasveit. Sýslan er strjálbýl og fólki fækkaði mjög í sveitunum á síðari hluta 20. aldar. Margir af fjörðunum milli Reykjaness og Vatnsfjarðar eru komnir í eyði.
Vaðalfjöll og Reiphólsfjöll í Reykhólasveit setja sterkan svip á sveitina, austast í Barðastrandarsýslu. Í fjöllunum finnst víða surtarbrandur sem geymir minjar náttúrufars síðustu árþúsunda.
|
| Látrabjarg - ljósm. Sögusmiðjan |
Bændur í héraðinu hafa í aldanna rás stundað sauðfjárrækt og haft verulega búbót af gjöfum strandlengjunnar. Margvísleg hlunnindi, eins og fugla- og eggjataka, auk sel- og silungsveiði, gerðu sýslubúum lífið léttara áður fyrr.
|
| Vaðalfjöll - ljósm. Sigurður Atlason |
|