|
||||
|
Saga félagsins |
||||
|
Harmonikufélag Vestfjarða var stofnað 16. nóvember 1986. Stofnfélagar voru 19 talsins. Eins og nafnið bendir til er félagssvæðið Vestfirðir.
Félagið hefur frá stofnun verið opið jafnt áhugafólki um harmonikutónlist og þeim sem leika á harmoniku. Félagar nú eru um 80 talsins.
Árið 1988 skrifaði stjórn félagsins Tónlistarskóla Ísafjarðar og hvatti til að tekin yrði upp kennsla í harmonikuleik við skólann. Þessu erindi var fylgt eftir með því að gefa skólanum tvær kennsluharmonikur. Einnig hefur tónlistarskólunum í Bolungarvík, á Þingeyri og Flateyri verið gefnar kennsluharmonikur. Þetta bar þann árangur að harmonikukennsla hefur verið veigamikill þáttur í starfi þessara skóla og vaxið með árunum.
Allt frá stofnun félagsins hafa hljómsveitir og einstakir félagar leikið fyrir dansi við ýmis tækifæri. Eins hefur félagið haldið dansleiki tvisvar til þrisvar á ári. Félagsmenn hafa heimsótt önnur félög og tekið á móti harmonikufélögum sem hingað hafa komið í heimsókn. Einnig hafa verið farnar velheppnaðar skemmtiferðir (sumarferðir) og þá yfirleitt í fjarlægustu hluta félagssvæðisins, s.s. Barðastrandarsýslu og Strandasýslu en einnig í aðra landshluta.
Harmonikufélag Vestfjarða hefur tekið þátt í landsmótum harmonikufélaga frá árinu 1990. Lögð hefur verið áhersla á að kynna unga og upprennandi harmonikunemendur, ásamt eldri og reyndari harmonikuleikara
Þá hefur félagið staðið fyrir hljómleikum þekktra harmonikuleikara s.s. Anniku Anderson, Sigrid Oyfeldt, Anders Larson og Conny Bocström. Tatu Kantomaa, Bröderna Färm að ógleymdum Hrólfi Vagnssyni og rússnesku tvíburunum Yuri og Vadim Fjodorov. |
||||