Landsmót á Ísafirði 2002         

 

Aðalsíða

Dagskrá

Schedule English

Saga félagsins


Ýmsir tenglar

Dagskrá:
Fimmtudagur 4. júlí  

Mótsgestir koma til Ísafjarðar að deginum og fram á kvöld. Upplýsingamiðstöð og miðasala verður opin fram eftir kvöldi. Mótsgestir koma sér fyrir á gististöðum og tjaldstæðum. Hugsanlega óvæntar uppákomur.

Föstudagur 5. júlí

9:00    Hljóðprófanir í Íþróttahúsi

13:00  Mótssetning

13:30  Tónleikar félaga

17:00  Opnað harmonikusafn Ásgeirs S. Sigurðssonar

22:00  Dansleikir í 3-4 húsum, hljómsveitir hinna ýmsu félaga leika fyrir dansi.

Laugardagur 6. júlí

13:30  Tónleikar félaga í Íþróttahúsinu

17:00  Tónleikar heiðursgesta

          Annika Anderson og Lars Karlson frá Svíþjóð

22:00  Stórdansleikur í Íþróttahúsinu á Torfnesi

Sunnudagur 7. júlí

Harmonikusafn og sýning á hljómplötum Sigurjóns verða opin fram eftir degi.

Heimferð mótsgesta.  

Nytsamlegar upplýsingar: 

Þetta eru drög að dagskrá og getur eitthvað breyst. Baldur Geirmundsson hefur samið og útsett landsmótslag sem flutt verður sameiginlega af öllum harmonikuleikurum á mótinu, lagið er fjörugt og grípandi. Nótur hafa verið sendar öllum formönnum harmonikufélaga. Einnig er hægt að fá þær hjá undirbúningsnefnd.

          Sýning á hluta af hinu stórmerkilega hljómplötusafni Sigurjóns Samúelssonar á Hrafnabjörgum verður mótsdagana. Sigurjón verður á staðnum og spilar fágætar upptökur af hljómplötum frá m.a. fyrstu áratugum síðustu aldar, aðallega harmonikutónlist,  en einnig er Sigurjón  hafsjór af fróðleik um plötuútgáfu og harmonikutónlist.

          Aðal tjaldsvæði mótsins verður á túninu við Gamla sjúkrahúsið í miðbæ Ísafjarðar. Einnig eru tjaldstæði við Menntaskólann og Íþróttahúsið. Þá er mjög góð aðstaða fyrir húsbíla við Sjóminjasafnið í Neðstakaupstað. Ekki má gleyma tjaldstæði í hinum fagra stað, Tunguskógi.

          Undirbúningsnefndin gerir sér ljóst að dagskrá mótsins er mjög mikil og all löng á föstudag og laugardag, þannig að upplagt er að lengja dvölina um nokkra daga eftir mótið. Í nágrenninu eru margir áhugaverðir staðir, s.s. Ósvör í Bolungarvík og bátsferð í náttúruperluna Vigur verður öllum ógleymanleg. Einnig má benda á vinsælar ferðir til Hesteyrar í Jökulfjörðum. Rétt er að benda mótsgestum á þann möguleika að fara hringferð um Vestfirði, þ.e. að koma til Ísafjarðar um Ísafjarðardjúp, en fara til baka um Vestfjarðagöng áleiðis að Flókalundi og þaðan annað hvort landleiðina um Barðaströnd, eða með Baldri yfir Breiðafjörð að Stykkishólmi.

          Varðandi nánari upplýsingar um ferðamöguleika á þessu svæði má benda á ferðaskrifstofuna Vesturferðir í síma 456-5111.