- Galdrasýning á Ströndum var opnuð á Jónsmessunótt 23. júní árið 2000 - Fróðleg og skemmtileg sýning um íslensk galdramál -

Viskubrunnurinn


Þorlákur Skúlason - biskup

Þorlákur Skúlason biskupÞorlákur Skúlason (1597-1656) varð Hólabiskup eftir Guðbrand Þorláksson. Hann hélt áfram útgáfustarfsemi á Hólum, lét m.a. prenta Biblíu, en einnig var hafði hann áhuga á fræðum og studdi Björn á Skarðsá við söguritun.

Í Bréfabók hans er fjallað um tvö galdramál sem upp komu á Norðurlandi. Í öðru tilvikinu varð prestur nokkur í Skagafirði að segja af sér embætti fyrir að hafa sagt Krist „rentumeistara djöfulsins“. Hitt tilvikið fjallar um galdrarykti og illt framferði Svarfdælinga sem biskup taldi þvætting einan.

Séra Páll Björnsson í Selárdal Páll Vídalín lögmaður
Rögnvaldur Sigmundsson Vilhjálmur Arnfinnsson (Galdra-Vilki)
Þorlákur Skúlason biskup Þorleifur Kortsson sýslumaður og lögmaður

Þekktar persónur úr þjóðsögum

© Strandagaldur
Öllum er leyfilegt að nýta og vitna í texta í Viskubrunninum að vild, svo framarlega sem heimilda er getið.


Annáll 17. aldar

© galdrasýning á ströndum - höfðagata 8-10 - 510 hólmavík - galdrasyning@akademia.is - sími 451 3525