|
-
Galdrasýning á Ströndum var opnuð á Jónsmessunótt
23. júní árið 2000 - Fróðleg og
skemmtileg sýning um íslensk galdramál -
|
|
Viskubrunnurinn |
|
Rögnvaldur
Sigmundsson - sýslumaður
Rögnvaldur Sigmundsson var sýslumaður í Strandasýslu 1687-1700 en bjó stórbúi í Innra-Fagradal á Skarðströnd. hann ákærði mág sinn, séra Árna Loptsson fyrir að hafa valdið veikindum sínum og konu sinnar með gjörningum. Árni, sem var hálfgerður vandræðaklerkur og hafði áður komið nálægt galdramálum, kom fram tylftareiði á prestastefnu og sættust þeir mágarnir án eftirmála. Rögnvaldur sýslumaður stjórnaði dómi í máli Klemusar Bjarnasonar úr Steingrímsfirði sem var síðastur dæmdur til dauða fyrir galdur þótt kóngur breytti dómnum síðan í útlegð.
Þekktar persónur úr þjóðsögum
© Strandagaldur |
|
Annáll
17. aldar
|
© galdrasýning á ströndum - höfðagata 8-10 - 510 hólmavík - galdrasyning@akademia.is - sími 451 3525