|
-
Galdrasýning á Ströndum var opnuð á Jónsmessunótt
23. júní árið 2000 - Fróðleg og
skemmtileg sýning um íslensk galdramál -
|
|
Viskubrunnurinn |
|
Sr.
Páll Björnsson- í Selárdal
Sem prestur þótti Páll afburða ræðumaður og var hann talinn ganga næst Brynjólfi biskupi að lærdómi hér á landi. Eftir hann liggja ýmis skrif, m.a. fjölmargar prédikanir, en lengi var álitið að Jón Vídalín einn væri honum fremri í þeirri bókmenntagrein. Séra Páll sinnti nokkuð náttúrufræði auk þess sem hann var mikilvirkur útgerðarmaður og lagtækur skipasmiður. Hann lét m.a. smíða fiskiskútu, svipaða duggum þeim sem Hollendingar sóttu sjóinn á við Íslandsstrendur og sigldi henni sjálfur á dýpri mið en menn höfðu áður sótt. Hann mældi hnattstöðu Bjargtanga og eftir hann liggja mörg ritverk, einkum ræður og þýðingar.
Einn til viðbótar var brenndur litlu síðar vegna veikinda dóttur þeirra hjóna. Sr. Páll hefur skrifað gegn galdri og sótti þá mikið til hinnar illræmdu bókar Nornahamarsins. Sjá nánar Selárdalsmál.
Þekktar persónur úr þjóðsögum
© Strandagaldur |
|
Annáll
17. aldar
|
© galdrasýning á ströndum - höfðagata 8-10 - 510 hólmavík - galdrasyning@akademia.is - sími 451 3525