|
-
Galdrasýning á Ströndum var opnuð á Jónsmessunótt
23. júní árið 2000 - Fróðleg og
skemmtileg sýning um íslensk galdramál -
|
|
Viskubrunnurinn |
|
Magnús
Magnússon - sýslumaður
Magnús Magnússon (1630-1704) var sonur Magnúsar Jónssonar sýslumanns í Miðhlíð og konu hans Þórunnar Þorleifsdóttur. Hann lærði ekki í Latínuskóla en fór utan 1648 og komst í þjónustu Hans Nansen yfirborgmeistara í Kaupmannahöfn. Magnús fékk hálfa Ísafjarðarsýslu 1653 og hélt henni með hléum til 1688. Hann bjó á Eyri í Seyðisfirði frá 1653 til æviloka. Magnús var mikill fræðimaður, samdi m.a. Eyrarannál, jarðabók, tíndi saman dóma og sumsstaðar er honum eignuð lækningabók, grasabók og plánetubók. Magnús dæmdi í fjölmörgum galdramálum, ma. var hann annar tveggja dómara í Kirkjubólsmálinu og hlaut nokkur ámæli þegar Þórarinn á Birnustöðum slapp úr haldi hans. Þekktar persónur úr þjóðsögum
© Strandagaldur |
|
Annáll
17. aldar
|
© galdrasýning á ströndum - höfðagata 8-10 - 510 hólmavík - galdrasyning@akademia.is - sími 451 3525