- Galdrasýning á Ströndum var opnuð á Jónsmessunótt 23. júní árið 2000 - Fróðleg og skemmtileg sýning um íslensk galdramál -

Viskubrunnurinn


Magnús Björnsson - lögmaður

Magnús Björnsson (1595-1662), sýslumaður í Eyjafirði, var sonur Björns ríka Benediktssonar og konu hans Elínu Pálsdóttur. Hann varð stúdent frá Hólaskóla 1613 en dvaldi síðan í Hamborg og Kaupmannahöfn um 1614. Hann varð lögmaður 1639 að kröfu hirðstjóra og hélt þeim starfa í 23 ár eða þar til hann sagði af sér vegna veikinda. Magnús var einn auðugasti maður á sinni tíð enda var hann fjárgæslumaður mikill, en þó höfðingi og rausnarmaður. Hann var og fræðimaður, ættvís og skáldmæltur.

Magnús var mjög harður í afstöðu sinni til galdra og galdramanna og stóð að fyrstu galdrabrennunni árið 1625 þegar Jón Rögnvaldsson úr Svarfaðardal var brenndur fyrir að vekja upp sendingu gegn óvini sínum auk þess sem hann fjallaði um önnur mál í lögmannstíð sinni.

Magnús Björnsson lögmaður
Séra Páll Björnsson í Selárdal Páll Vídalín lögmaður
Rögnvaldur Sigmundsson Vilhjálmur Arnfinnsson (Galdra-Vilki)
Þorlákur Skúlason biskup Þorleifur Kortsson sýslumaður og lögmaður

Þekktar persónur úr þjóðsögum

© Strandagaldur
Öllum er leyfilegt að nýta og vitna í texta í Viskubrunninum að vild, svo framarlega sem heimilda er getið.


Annáll 17. aldar

© galdrasýning á ströndum - höfðagata 8-10 - 510 hólmavík - galdrasyning@akademia.is - sími 451 3525