|
-
Galdrasýning á Ströndum var
opnuð á Jónsmessunótt 23.
júní árið 2000 -
Fróðleg og skemmtileg sýning um
íslensk galdramál -
|
|
Viskubrunnurinn |
|
Jón
Guðmundsson - lærði
Í verkum Jóns sameinaðist hinn forni menningararfur, hjátrú alþýðunnar og fræðimennska. Á 17. öld þegar margir lærðir menn þjóðarinnar skýrðu hörmungar aldarinnar samkvæmt kennisetningu lúterskunnar sem réttmæta refsingu guðs við synduga þjóð, stóð Jón uppi sem víðsýnn og gáfaður alþýðumaður og leyfði sér að rita í jákvæðum anda gegn þröngsýni og taldi heimskulegt að láta katólskuna lönd og leið, af henni mætti margt læra. Á árunum 1611-12 á Jón lærði að hafa kveðið niður tvo drauga að Stað á Snæfjallaströnd með mögnuðum galdrasæringum, kvæðunum Fjandafælu og Snjáfjallavísum. Af þessum afrekum ávann Jón sér nokkrar vinsældir og virðingu meðal alþýðu. Jón lærði hafði töluverð samskipti við baskneska hvalfangara á Ströndum og aðstoðaði þá þegar þeir brutu skip sín í Reykjarfirði. Hann var eini maðurinn sem opinberlega andmælti Spánverjavígunum 1615 og hrökklaðist af Vestfjörðum undan ofsóknum sýslumannsins Ara í Ögri vegna skrifa sinna um málið. Eftir það settist hann að undir Jökli og stundaði m.a. lækningar, en eftir að sr. Guðmundur Einarsson á Staðastað skrifaði Hugrás gegn Jóni fluttist hann á Akranes. Guðmundur sonur hans kærði Ólaf Pétursson umboðsmann á Bessastöðum fyrir galdra og í framhaldi af því kærði Ólafur Jón fyrir lækningakver nokkurt og var Jón dæmdur útlægur af landinu fyrir kukl. Jón komst til Kaupmannahafnar og fékk málið tekið upp að nýju en á Alþingi 1637 var dómurinn staðfestur.
Þekktar persónur úr þjóðsögum © Strandagaldur |
|
Annáll 17. aldar
|
© galdrasýning á ströndum - höfðagata 8-10 - 510 hólmavík - galdrasyning@holmavik.is - sími 451 3525