|
-
Galdrasýning á Ströndum var opnuð á Jónsmessunótt
23. júní árið 2000 - Fróðleg og
skemmtileg sýning um íslensk galdramál -
|
|
Viskubrunnurinn |
|
Sr.
Hallgrímur Pétursson
Þau giftust og bjuggu við basl og fátækt í nokkur ár á Suðurnesjum. Árið 1651 fékk Hallgrímur Saurbæ á Hvalfjarðarströnd og vænkaðist þá hagur þeirra hjóna nokkuð. Hann komst snemma í hóp helstu skálda og orti sálma, rímur og beittar heimsádeilur. Þekktasta verk hans eru Passíusálmarnir, þeir voru fyrst prentaðir á Hólum 1666 og hafa síðan verið prentaðir oftar en nokkurt annað rit á Íslandi. Passíusálmarnir hafa fylgt þjóðinni æ síðan og verið henni nákomnari en nokkur annar kveðskapur. Fróðleg er sú þjóðsaga að einhvern tíma hafi Hallgrímur átt í vandræðum með dýrbít sem lagðist á fé hans. Loks sá hann til lágfótu þar sem hann stóð í prédikunarstól og kvað þá svo magnaða tófustefnu að dýrbíturinn sökk í jörð en Hallgrímur missti skáldagáfuna og fékk hana ekki aftur fyrr en hann hóf að yrkja Passíusálmana. Sálmaskáldið
Hallgrímur Pétursson lét af prestskap árið 1669
vegna holdsveiki, flutti til Eyjólfs sonar síns og lést þar. Þekktar persónur úr þjóðsögum
© Strandagaldur |
|
Annáll
17. aldar
|
© galdrasýning á ströndum - höfðagata 8-10 - 510 hólmavík - galdrasyning@akademia.is - sími 451 3525