- Galdrasýning á Ströndum var opnuð á Jónsmessunótt 23. júní árið 2000 - Fróðleg og skemmtileg sýning um íslensk galdramál -

Viskubrunnurinn


Guðbrandur Þorláksson - biskup

Guðbrandur Þorláksson biskupGuðbrandur Þorláksson Hólabiskup (1541-1627) lagði stund á guðfræði og rökfræði við Hafnarháskóla og er sá Íslendingur sem lengst hefur gegnt biskupsembætti, 56 ár. Hann lagði mikla áherslu á að festa lútherska trú í sessi. Guðsorðabækur voru af mjög skornum skammti og til að ráða bót á því keypti hann prentsmiðjuna sem Jón Arason hafði fengið til landsins og gerðist umsvifamikill útgefandi bóka um trúarleg efni. Kunnust er þó Biblían sem við hann er kennd, Guðbrandsbiblía, sem kom út 1584.

Guðbrandur var einnig mikill brautryðjandi í að auka áhuga og þekkingu manna á landinu og náttúru þess og var mikill áhugamaður um náttúrufræði og landafræði. Um 1600 teiknaði hann t.d. Íslandskort sem gjörbreytti þáverandi hugmyndum manna um lögun landsins.

Guðbrandur stóð í miklum málaferlum um ævina en hann vann ötullega að því að auka jarðeignir Hólastóls og sínar eigin. Einkamálavafstur hans dró marga inn í deilurnar enda voru jarðirnar sem hann gerði tilkall til komnar í eigu ýmissa aðila og ekki alltaf auðvelt að rifta kaupsamningum. Aflaði hann sér margra óvina með málaferlunum en auk þess bakaði það honum óvinsældir að hann skaut stundum ágreiningi við lögréttu til konungs. Eitthvað virðist Guðbrandur hafa stutt Jón lærða en fátt er vitað fyrir víst um samskipti þeirra.

Guðbrandur Þorláksson biskup
Séra Páll Björnsson í Selárdal Páll Vídalín lögmaður
Rögnvaldur Sigmundsson Vilhjálmur Arnfinnsson (Galdra-Vilki)
Þorlákur Skúlason biskup Þorleifur Kortsson sýslumaður og lögmaður

Þekktar persónur úr þjóðsögum

© Strandagaldur
Öllum er leyfilegt að nýta og vitna í texta í Viskubrunninum að vild, svo framarlega sem heimilda er getið.


Annáll 17. aldar

© galdrasýning á ströndum - höfðagata 8-10 - 510 hólmavík - galdrasyning@akademia.is - sími 451 3525