|
-
Galdrasýning á Ströndum var opnuð á Jónsmessunótt
23. júní árið 2000 - Fróðleg og
skemmtileg sýning um íslensk galdramál -
|
|
Viskubrunnurinn |
|
Árni
Magnússon
Árni tengist galdramálum 17. aldar á nokkuð sérstakan hátt. Eitt af verkefnum hans og Páls Vídalíns fyrir dönsku stjórnina þegar Jarðabókin og Manntalið var gert var að kanna réttmæti dóma. Til er ítarleg skýrsla þeirra um málarekstur í galdramálum, einkum mál Ara Pálssonar sem brenndur var 1681, og er það niðurstaðan að um dómsmorð hafi verið að ræða, því í galdramálum hafi dómsmeðferð víða verið ábótavant. Að auki skrifaði Árni um galdramálin í Thisted í Danmörku og sýndi þar fram á hversu fáránleg rök ákærendanna voru. Miðvikudagskvöld 20. október 1728 kom upp eldur í Kaupmannahöfn. Ráðaleysi var mikið við slökkvistarf í borginni og þótt Árni og aðstoðarmenn hans legðu allt kapp á að koma bókum og handritum í skjól brann vænn hluti safns hans ásamt bókasafni háskólans og bókasafni Worms Sjálandsbiskups.
Þekktar persónur úr þjóðsögum
© Strandagaldur |
|
Annáll
17. aldar
|
© galdrasýning á ströndum - höfðagata 8-10 - 510 hólmavík - galdrasyning@akademia.is - sími 451 3525