- Galdrasýning á Ströndum var opnuð á Jónsmessunótt 23. júní árið 2000 - Fróðleg og skemmtileg sýning um íslensk galdramál -

Viskubrunnurinn


Ari sýslumaður í Ögri

Ari í Ögri (1571-1652) var kominn af miklum höfðingjum, faðir hans var Magnús prúði Jónsson sýslumaður í Ögri og móðir hans Ragnheiður Eggertsdóttir, lögmanns í Ögri. Í eftirmælum um Ara er þess getið að fyrir tvítugt hafi hann verið 9 ár við nám í Hamborg en þar átti hann frændur í móðurætt. Hann tók við Barðastrandarsýslu eftir föður sinn en sleppti sýslunni nokkrum árum síðar til bróður síns, og tók við Ísafjarðarsýslu og Strandasýslu. Þær hélt hann til dauðadags.

Ari bjó ýmist að Ögri eða á Reykhólum og varð stórauðugur. Hann var með hæstu mönnum, þótti harðdrægur mjög og hélt fast um sitt. Kona hans var Kristín dóttir Guðbrands Hólabiskups. Ari er einna þekktastur fyrir framgöngu sína í Spánverjavígunum sem er talið eitt af mestu grimmdarverkum Íslandssögunnar.

Ari sýslumaður í Ögri
Séra Páll Björnsson í Selárdal Páll Vídalín lögmaður
Rögnvaldur Sigmundsson Vilhjálmur Arnfinnsson (Galdra-Vilki)
Þorlákur Skúlason biskup Þorleifur Kortsson sýslumaður og lögmaður

Þekktar persónur úr þjóðsögum

© Strandagaldur
Öllum er leyfilegt að nýta og vitna í texta í Viskubrunninum að vild, svo framarlega sem heimilda er getið.


Annáll 17. aldar

© galdrasýning á ströndum - höfðagata 8-10 - 510 hólmavík - galdrasyning@akademia.is - sími 451 3525