- Galdrasýning á Ströndum var opnuð á Jónsmessunótt 23. júní árið 2000 - Fróðleg og skemmtileg sýning um íslensk galdramál -

Viskubrunnurinn

Viskubrunnurinn

Viskubrunnur
Galdrasýningar á Ströndum

Vinna við Galdrasýninguna hefur staðið yfir býsna lengi, eða allt frá árinu 1996. Verkefni sem þetta krefst mikils undirbúnings og drjúgur tími hefur farið í rannsóknir og fræðistörf. Á þessum síðum gefur að líta brot af afrakstrinum af þessu grúski.

Heimilda hefur jafnt verið leitað á handritasöfnum og í prentuðum ritum og bæði hér á landi og erlendis. Býsna margt athyglisvert hefur komið upp úr krafsinu. Á sýningunni sjálfri er aðeins brot af afrakstrinum, enda hentar sumt mun betur í bókarformi. Strandagaldur mun standa að útgáfu á ýmsum ritum frá og um 17. öld, ásamt því að halda úti þessum Viskubrunni á vefnum.

Við vonumst til að fólk njóti og hafi gaman af heimsókninni, hvort heldur sem er í safnhúsin eða hér á vefnum.

Heimildaöflun, rannsóknarvinna og ritun:
Jón Jónsson, þjóðfræðingur
Magnús Rafnsson, bókmenntafræðingur
Rakel Pálsdóttir, þjóðfræðingur

Aðrir sem komu að rannsóknarvinnu:
Pétur Jónsson, sagnfræðingur
Valdimar Tr. Hafstein, þjóðfræðingur

© Strandagaldur
Öllum er leyfilegt að nýta og vitna í texta í Viskubrunninum að vild, svo framarlega sem heimilda er getið.


Viskubrunnurinn

síðast uppfært 23.11.2005 <=========> vefhönnun: sigatlas
© galdrasýning á ströndum - höfðagata 8-10 - 510 hólmavík - galdrasyning@akademia.is - sími 451 3525