|
-
Galdrasýning á Ströndum var opnuð á Jónsmessunótt
23. júní árið 2000 - Fróðleg og
skemmtileg sýning um íslensk galdramál -
|
|
Viskubrunnurinn |
|
Galdramál
og brennur
|
|
Galdramál
og galdrabrennur Galdrafárið í Evrópu hófst um 1480 og stóð fram undir 1700. Til Íslands bárust áhrifin frá Danmörku og Þýskalandi. Þeirra tók þó ekki að gæta hér að ráði fyrr en galdraofsóknirnar þar voru í rénum, um miðja 17. öld. Galdrafárið hér var að mörgu leyti ólíkt því sem erlendis var, hér snerust flest galdramálin um meðferð galdrastafa og rúnablaða sem áttu að hafa valdið fólki eða búfénaði skaða. Djöfullinn kom lítið við sögu og galdramessur og pyndingar ekki neitt, auk þess sem konur voru í miklum minnhluta þeirra sem brenndir voru hér á landi. Um 1660 var galdrafárið víðast hvar í rénum í Evrópu og síðasta galdrabrenna á Íslandi fór fram 1683 eða 1685, eftir því hvaða póll er tekinn í hæðina. Hér er fjallað um nokkur mál, annars vegar þau sem hvað frægust urðu og hins vegar nokkur mál af Ströndum sem eru dæmigerð fyrir fjölda minni háttar mála.
© Strandagaldur |
|
Galdramál
og brennur
|
© galdrasýning á ströndum - höfðagata 8-10 - 510 hólmavík - galdrasyning@akademia.is - sími 451 3525