|
- SATOR ~ AREPO ~ TENET ~ OPERA ~ ROTAS -
|
|
Galdrasýning á Ströndum |
|
Galdrasýning á Ströndum Fyrsti áfangi Galdrasýningar á Ströndum var opnaður á Hólmavík á Jónsmessunni árið 2000. Unnið er að uppbyggingu annars áfanga Galdrasýningarinnar í Bjarnarfirði. Á næstu árum er svo stefnt að opnun tveggja sýninga til viðbótar á Ströndum. Sagan Það er svo sannarlega við hæfi að galdrasýning sé staðsett á Ströndum. Í Árneshreppi bar mjög á ofsóknum og árið 1654 voru þrír menn brenndir á báli fyrir galdra í Trékyllisvík. Fleiri galdramál komu upp í sýslunni, t.d. var Klemus nokkur Bjarnason í Steingrímsfirði á Ströndum dæmdur á bálið árið 1690 fyrir galdra, síðastur Íslendinga. Konungur mildaði reyndar dóm hans í ævilanga útlegð. Að auki bjó sýslumaðurinn Þorleifur Kortsson í héraðinu, á Bæ í Hrútafirði, en hann er í sögubókum sagður hafa verið ötull við að koma mönnum á bálið. Frá
fyrstu tíð fer sögum af galdrakunnáttu Strandamanna
og fleiri stór galdramál komu upp á Ströndum
en búast mætti við í svo fámennu héraði.
Um þetta ber vitni mikill sagnaarfur sem segir frá göldrum
Strandamanna og Hornstrendinga. Í galdrafárinu á
17. öld urðu Vestfirðingar langtum verst úti. Af
þeim ríflega 20 mönnum sem luku ævi sinni á
bálinu á Íslandi voru 17 úr þeim landshluta. Á Galdrasýningu á Ströndum er hægt að kynnast þessu sérstæða tímabili sögunnar á fræðandi og lifandi hátt. Galdurinn
Galdrasýning
á Ströndum er lifandi sýning sem vekur áhuga
ungra sem aldinna. Þar er fjölbreytt tækni notuð
til að kynna gestum hugarheim galdraaldar. |
síðast
uppfært
23.05.2007
<=========> vefhönnun: sigatlas
© strandagaldur - höfðagata 8-10 - 510 hólmavík
- galdrasyning@holmavik.is - sími 451 3525