|
- SATOR ~ AREPO ~ TENET ~ OPERA ~ ROTAS -
|
|
Kollafjörður |
|
Kollafjörður er stuttur fjörður á Ströndum. Bændur þar lifa á sauðfjárrækt. Grunnskóli var rekinn á Broddanesi frá 1978 fram til ársins 2004, en hætti þá um haustið og skólabörnum er ekið til Hólmavíkur. Skólabyggingin hefur verið nýtt fyrir svefnpokagistingu yfir sumartímann. Hún er teiknuð af dr. Magga Jónssyni arkitekt. Næsti fjörður norðan við Kollafjörð er Steingrímsfjörður og næsti fjörður sunnan við er Bitrufjörður. Úr botni Kollafjarðar liggur vegur nr. 69 yfir í Gilsfjörð um Steinadalsheiði. Utarlega í Kollafirði norðanverðum standa tveir steindrangar í fjöruborðinu. Sagan segir að það séu tröll sem döguðu þar uppi eftir að hafa gert tilraun til að skilja Vestfirði frá meginlandinu. Stærri drangurinn er kerlingin og sá minni er karlinn. Á Kollafjarðarnesi er kirkja, byggð úr steinsteypu árið 1909. Það er elsta steinsteypta hús á Ströndum. Kollafjarðarnes er nú í eyði. Á sveitabænum Felli er rekin sumardvöl fyrir fötluð börn. Jarðir í Kollafirði |
síðast
uppfært
23.05.2007
<=========> vefhönnun: sigatlas
© strandagaldur - höfðagata 8-10 - 510 hólmavík
- galdrasyning@holmavik.is - sími 451 3525