Mosdalur
 
Gengið út fjöru, fjallið Þorfinnur í baksýn
Mosdalur er þröngur dalur út úr vestanverðum Önundarfirði, milli fjallanna Sporhamars að innan og Hrafnaskálarnúps að utan.
Há fjöll eru fyrir botni dalsins og báðum megin við hann, svo að hesti verður ekki riðið upp úr honum.

Mosdalur var eina býlið í samnefndum dal. Mosdals er fyrst getið í heimildum frá 15. öld en jörðin virðist þá hafa verið hjáleiga frá Kirkjubóli í Valþjófsdal. Fullvíst er að búið var í Mosdal um miðbik 16. aldar. Í jarðarbók Árna og Páls frá árinu 1710 segir að jörðin hafið legið í eyði í marga mannsaldra en byggst á ný árið 1692.


Búendur þeir sem lengst allra er talið að hafi búið í Mosdal á 19. öld eru hjónin Jón Magnússon og Guðrún Jónsdóttir. Þau hófu búskap í Mosdal fyrir 1830 og um það var ort.

Mosdalur er mikil jörð
margan feitir sauðinn.
Bóndinn Jón með býsna hjörð
ber þar saman auðinn.


Jón Magnússon ver enn bóndi í Mosdal er hann andaðist árið 1880 og ekkja hans var talin fyrir búinu árið 1885. Fóstursonur þessara hjóna, Guðmundur Jóhannesson , tók við 1886 og bjó til 1912 en árið 1930 fór jörðin í eyði.
 
Um 1700 bjuggu í hjónin Gísli Árnason og Guðrún Jónsdóttir í Mosdal og hjá þeim var þá vinnumaður sem hét Otti Ottason. Á prestastefnu sem haldin var á Mýrum í Dýrafirði 20. júní 1702 var fjallað um "hórdómsrykti" úr Mosdal sem borist hafði kirkjunnar þjónum til eyrna. Vildu slúðurberarnir meina að Otti væri sannur faðir að barni því sem húsfreyjan í Mosdal hafði þá nýlega alið. Enginn Otti eða Ottó Ottason er finnanlegur í manntalinu frá 1703 nema eitt gamalmenni á Suðurlandi svo líklegt má telja að Otti í Mosdal hafi séð þann kost vænstan að fara í felur.
Árið 1707 lét Friðrik kóngur fjórði lýsa eftir honum á Alþingi og var hann þá sagður burtstrokinn úr Ísafjarðarsýslu. Auglýst var eftir Otta að beiðni Jóns Vídalíns, Skálholtsbiskups, sem sýnir að hann hefur fyrst og fremst átt í útistöðum við kirkjuna. Sérstaklega er tekið fram að Otti hefði að undanförnu vanvirt heilagt sakramenti og sýnt öllu guðsorði fullkomna fyrirlitningu. Nafn Otta lifði lengi á vörum fólks og við hann mun vera kenndar Ottalágar, grasgefnir bollar í Lægriholtum hjá Mosdalsá, framan við túnið í Mosdal. Þjóðsaga um hann var enn á kreiki á fyrstu áratugum síðustu aldar og hann sagður hafa verið sauðaþjófur sem strauk úr landi með hollenskum duggurum.
SAGAN AF OTTA