Á Kirkjubóli í Valþjófsdal búa hjónin Sigríður Magnúsdóttir f.1955 og Guðmundur Steinar Björgmundsson f.1948. Þau eiga fjóra syni, Björgmund Örn f. 1975  Magnús Kristján f. 1976 Eyþór f, 1978  og Bernharður f. 1984.
Guðmundur Steinar er fæddur og uppalinn á Kirkjubóli og er 4. ættliður sömu fjölskyldu í búskaparsögu Kirkjubóls. Guðmundur Steinar og Sigríður hófu búskap 1975 fyrst í sambýli við foreldra Guðmundar, þau Björgmund Guðmundsson og Ágústínu Bernharðsdóttir. Björgmundur og Ágústína bjuggu á Kirkjubóli á árunum 1945-1987.  Ágústína var dóttir Bernharðar Guðmundssonar og Járngerðar Eyjólfsdóttir sem voru ábúendur á Kirkjubóli á árunum 1912-1944. Járngerður var dóttir Kristínar Jónsdóttir og Eyjólfs Jónssonar en þau hófu búskap á Kirkjubóli árið 1881.


Fjölskyldan á Kirkjubóli á jólum 2000
efri röð .v. Björgmundur, Jónína (sambýliskona Björgm.) Guðmundur Steinar, Eyþór, Jóna Lára (sambýliskona Eyþórs)  neðri röð v. Bernharður, Sigríður, Magnús.

Kirkjuból eða Dalur eins og 
hún hét áður er mjög gamalt býli. Fyrsti bóndinn í Valþjófsdal er talinn hafa heitið Valþjófur og búið í Dal. Land Kirkjubóls I og II er í vestanverðum dalnum.
Frá bæjarhólnum á Kirkjubóli er gott að líta yfir Valþjófsdal sem liggur upp frá fjarðarströndinni með nær beina stefnu í suður.  Dalsdalur vestan Dalsár er beitiland Kirkjubóls ásamt hlíðum allt að Brimnesi, sem er merki milli Kirkjubóls og Mosdals. Langá skiptir landi Kirkjubóls og Þorfinnsstaða að mestu, og Dalsá er landamerki Tungu og Kirkjubóls í aðalatriðum. Tún og engjar ná niður að sjávarkömbum og hefir það nú allt verjð þurrkað og ræktað.  Áður var talsvert heyjað fram á Dalsdal. Mótak nokkuð einnig fram á Dalsdal. Fyrir og eftir síðustu aldamót var talsverð útgerð frá Dalsjó. 
Oft var margbýlt á Kirkjubóli og árið 1703 bjuggu
hér sjö leiguliðar að hjáleigubændunum í Dalshúsi
meðtöldum.
Í landi Kirkjubóls voru um tíma þrjú íbúðarhús niður
við sjó.  Auk þessara þriggja húsa var þar verbúð.
Jón Guðmundsson og Marsibil Kristjánsdóttir bygðu
hús í Árnesi utan við árósin og bjuggu þar þangað til
þau fóru að búa á Kirkjubóli.  Kristján Eyjólssson og
María Einarsdóttir byggðu hús þar skammt frá, einnig
Einar Jóhannesson og Ragnhildur Bjarnadóttir.
Útgerð lagðist að mestu niður þegar Kristján Eyjólfsson og menn hans fórust með bát sínum 1921.  Nú hefir Markús Guðmundsson og Anna Björgmundsdóttir ( systir Guðmundar Steinars) byggt sér sumarbústað í Árnesi. Þau eiga heima í Bolungavík.

Síðustu aldirnar hafa oftast búið tveir bændur á Kirkjubóli.  Síðan 1961 hefur jörðin verið einsetin eða búið þar félagsbúi. Talið er að bænhús hafi komið mjög snemma á Kirkjubóli og kirkja buggð þar um  1470. Núverandi kirkja er frá árinu 1887.
Sími kom að Kirkjubóli II 1929 og var þar símstöð fyrir  Valþjófsdal.  Rafmagn frá samveitu kom 1964
.
Ábúendur


Á Kirkjubóli er stundaður blandaður búskapur, sauðfjárrækt og mjólkurframleiðsla.  Ræktað land er um 50 ha, auk þess er borið á kúahaga og þeir slegnir.
Í Mosdal, sem er eyðidalur og liggur milli Ingjaldssands og Valþjófsdals, er beitiland sauðfjár. Þar eru einnig höfð geldneyti búsins á sumrum og         hross sem ekki eru í brúkun. 
Sauðfé búsins er  dreift um dali Valþjófsdals auk Mosdals og er það drjúgt smalasvæði og mest í fjallendi og það smalað á tveim jafnfljótum. Búið er að taka talsvert land undir skógrækt í verkefni á vegum Skjólskóga
Saga Kirkjubóls.
Í DAGSINS ÖNN
Vetrarmynd úr garðinum.
        
á Kirkjubóli
Seldar afurðir frá búinu eru að jafnaði u.þ.b. 80.000 l. mjólk og 6000 kg. kjöt
á ári. Meðalframleiðsla á árskú er um 4500 lítrar, og hver vetrarfóðruð ær skilar um og yfir 30 kg af kjöti. Greiðslumark jarðarinnar
( kvóti ) er um 800 ærgildi.
Búskapur
Í fjárhúsinu á Kirkjubóli
 
Svipmyndir úr fjárhúsinu
.
Á hautin er fénu smalað í hús það talið og dregið í dilka.  Og þá fylgjist ung frænka með og athugar hvort hún hefur heimt af fjalli.
Ó hvað það er lítið
. Og drekkur kókómjólk
Vinur og Jónína